Félagsheimili á ferðinni
- skotgrundmot
- 5 days ago
- 1 min read
Síðastliðinn miðvikudagur var merkilegur dagur hjá félaginu okkar en þá fengum við afhent nýtt félagsheimili fyrir æfingasvæðið. Um er að ræða 60m2 timburhús sem við keyptum af Golfklúbbnum Jökli í Snæfellsbæ, en þau eru að færa sig um set og byggja nýjan golfvöll á nýjum stað. Þetta er búið að vera langt ferli en kaupsamningur var undirritaður vorið 2022. Flutningur hússins krafðist mikillar vinnu og undirbúnings en flutningurinn gekk á endanum mjög vel.
BB og synir ehf. sáu um að hífa húsið og Ragnar og Ásgeir ehf. flutti húsið, sem flutt var í lögreglufylgd 31,5 km leið frá Fróðá í Snæfellsbæ að æfingasvæðinu okkar Kolgrafirði. Nú tekur við mikil og spennandi vinna við endurbætur á húsinu en við nýttum tækifærið um leið og það var flutt og bættum við stálbitum undir húsið til að gera það stöðugra.
Það er ljóst að nýja félagsheimilið muni bæta alla aðstöðu á æfingasvæðinu en eldra félagshúsnæðið er aðeins 19m2 og er löngu orðið of lítið fyrir þann fjölda félagsmanna sem stunda skotæfingar hjá félaginu. Húsið verður tekið formlega í notkun á fimmtudaginn en þá fer fram árlegt sjómannadagsmót í leirdúfuskotfimi.

Comments