39 ára afmæli
Um helgina fagnaði Skotfélag Snæfellsness 39 ára starfsafmæli, en félagið var stofnað af skotáhugafólki í Grundarfirði þann 10. október árið 1987. Síðan þá hefur verið mikil og aðdáunarverð uppbygging hjá félaginu sem er enn að vaxa og dafna. Ásamt því að vera með öflugt og fjölbreytt íþróttastarf þá stendur félagið fyrir fræðslu um meðferð skotvopna, námskeið o.fl.
Það er hægt að fullyrða að félagið hefur aldrei verið sterkara en það er í dag og með mikið af öflugu fólki innanborðs. Félagið er skuldlaust og hefur byggt upp glæsilega aðstöðu til skotæfinga og keppni sem vakið hefur athygli út fyrir landsteinana.
Um leið og við óskum öllum félagsmönnum og velunnurum félagsins til hamingju með daginn þá viljum við þakka öllum þeim einstaklingum, sjálfboðaliðum og fyrirtækjum sem hafa staðið þétt við félagið í gegnum árin því án ykkar væri félagið ekki á sama stað. Til hamingju með daginn.










Comments