

Skotvopnanámskeið
Skotfélag Snæfellsness hefur í áratugi boðið upp á skotsvopnanámskeið og veiðikortanámskeið, fyrst í samstarfi við lögregluembættið á Vesturlandi og síðar í samstarfi við Umhverfisstofnun. Þá voru haldin helgarnámskeið þar sem nemendur sátu námskeið í staðnámi og luku námskeiðinu með skriflegu prófi ásamt verklegri þjálfun.
Nú er það SKOTVÍS sem heldur utan um skotvopnanámskeiðin og veiðikortanámskeiðin á Íslandi og bóklegi hlutinn fer fram í netskóla. Hann er hægt að taka í tölvunni heima og þegar nemendur hafa lokið netskólanum þá skrá nemendur sig í skriflegt próf. Nú er boðið upp á að taka skrifleg próf í Grunnskóla Grundarfjarðar og Dagný Rut Kjartansdóttir fulltrúi SKOTVÍS hefur umsjón með prófunum. Skotfélag Snæfellsness sér svo um verklega þjálfun. Það hefur því aldrei verið eins auðvelt fyrir Snæfellinga að ná sér í skotvopnaleyfi því nú er hægt að taka allt námið hér í heimabyggð. Hér eru frekari upplýsingar um Skotveiðiskóla SKOTVÍS.
Dagný Rut (s.847-6600) veitir frekari upplýsingar um skriflega prófið.

1) Skotveiðiskólinn
Það fyrsta sem þarf að gera til að öðlast skotvopnaleyfi er að skrá sig í Skotveiðiskólann. Kennslan fer fram í fjarkennslu og því er hægt að taka hana í tölvunni heima. Hægt er að skrá sig á námskeið hér:

2) Skrifleg próf
Þegar bóknáminu er lokið þurfa nemendur að skrá sig í skriflegt próf. Prófið er byggt upp sem krossaspurningar og hægt er að taka prófin hjá SKOTVÍS. Boðið er upp á að taka bóklegt próf í Grunnskólanum í Grundarfirði og það er Dagný Rut sem sér um framkvæmd prófa. Til þess að skrá sig í próf þarf að hafa samband við Dagnýju Rut í síma 847-6600.

3) Verkleg þjálfun
Þegar nemendur hafa staðist skriflegt próf þá fá nemendur verklega þjálfun þar sem m.a. er farið yfir örugga meðhöndlun skotvopna, siðareglur, umgengni um skotvelli o.fl. Skotfélag Snæfellsness sér um verklega þjálfun. Tímasetning verklegrar þjálfunar er eftir samkomulagi. Hægt er að hafa samband við fulltrúa Skotfélags Snæfellsness með því að senda tölvupóst á skotgrund@gmail.com.




