Stjórnarfundur
Í kvöld fór fram stjórnarfundur þar sem farið var yfir rekstur félagsins og skipulag næstu mánuða. Farið var yfir fjármál félagsins, síma- og netsamband, mótahald og framkvæmdir svo eitthvað sé nefnt.
Arnar Geir formaður byrjaði á að fara yfir heimsmeistaramótið í PRS sem haldið var í Gravestone í Texas í Bandaríkjunum í lok september, en Ísland átti þar 9 keppendur sem stóðu sig mjög vel og eru alltaf að bæta sig. Næst var rætt um Fossbúann 2027 og hvort félagið vildi halda það mót á næsta ári, hvaða dagsetnin kæmi til greina o.fl.
Farið var yfir hvað þyrfti að bæta í skotbrautinni okkar og hvaða framkvæmdir eru í forgangi. Þá var rætt um gjaldið fyrir afnot af leirdúfuskotvellinum sem hefur verið óbreytt í mörg ár, rætt var um vinnudag, músavarnir, ljósleiðara, skammbyssuæfingarnar og umsóknir félagsmanna um d-leyfi. Einnig var rætt um varnargarðinn meðfram Hrafnánni, en stórt rof kom í hann í síðustu viku sem stefnir æfingasvæðinu í hættu. Þá var einnig rætt um aðgengi nýrra félagsmanna að æfingasvæðinu og hvernig er best að nálgast fræðslu til þeirra um umgengni skotvallarins.










Comments