Skotíþróttaþing STÍ
- skotgrundmot

- 3 days ago
- 1 min read
Skotíþróttaþing STÍ fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal síðastliðinn laugardag. Stjórn STÍ var endurkjörin í heild sinni. Þingfulltrúar voru 32 frá 11 aðildarfélögum STÍ en 5 félög sáu sér ekki fært að mæta að þessu sinni. Þingið gekk vel fyrir sig og lög sambandsins voru uppfærð með töluverðum breytingum. Stjórn STÍ er skipuð eftirfarandi einstaklingum.
Aðalstjórn: Halldór Axelsson formaður, Jórunn Harðardóttir varaformaður, Guðmundur kr. Gíslason gjaldkeri og Ómar Örn Jónsson meðstjórnandi í aðalstjórn
Varastjórn: Valur Richter og Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir.

Arnar Geir formaður Skotfélags Snæfellsness lengst til vinstri og Steinar Smári með honum.
Myndin er tekin af facebook síðu STÍ.








Comments