top of page
Search

Mikil ánægja með sjómannadagsmótið

Árlegt sjómannadagsmót Skotfélags Snæfellsness fór fram síðastliðinn fimmtudag í blíðskapar veðri. Það var aðeins gjóla þegar keppendur mættu á svæðið en þegar fyrsti riðill var að ljúka fyrsta hring gerði algjört logn.


Mikil gleði var í hópnum og allir komnir til að njóta, en leikar fóru þannig að landsliðið sigraði mótið í ár með yfirburðum. Í einstaklingskeppninni sigraði Unnsteinn Guðmundsson eftir bráðabana, en hann og Arnar Guðlaugsson sem endaði í öðru sæti voru jafnir í fyrsta sæti eftir venjulega keppni. Dagný Rut tók þriðja sætið. Að lokum var svo haldin grillveisla þar sem voru grillaðar pylsur og spjallað fram á kvöld.

Landsliðið 2026 (á myndina vantar Benedikt Hauk og Jón Pétur)

 
 
 

Comments


HAFÐU SAMBAND

Skotgrund Skotfélag Snæfellsness

Fossahlíð 3

350 Grundarfirði

​​

Kt. 670490-1499

Banki: 0191-26-802

skotgrund@gmail.com

  • Facebook
  • Instagram
  • Black Facebook Icon
  • Black Instagram Icon

© 2020 Skotfélag Snæfellsness

bottom of page