Félagsgjaldið hækkar
- skotgrundmot

- 7 days ago
- 1 min read
Ákveðið var á aðalfundi félagsins þann 23. mars sl. að hækka árgjald félagsins úr 7.000 kr. í 10.000 kr. Þetta eru engu að síður með ódýrustu félagsgjöldum á landinu miðað við sambærilega æfingaaðstöðu. Eldriborgarar, öryrkjar og makar greiða áfram hálft gjald. Þá verður ekkert auka lyklagjald fyrir aðgang að æfingasvæðinu, þannig að félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld fá ótakmarkaðan aðgang að æfingasvæði félagsins. Helsta ástæðan fyrir hækkun gjaldsins er að nú erum við komin með upphituð hús og salerni allt árið í kring og þar með fastan kostnað s.s. rafmagnsreikning, tryggingar o.fl.
Þetta er töluverð hækkun í prósentu talið en við teljum þó að árgjaldið sé mjög sanngjarnt miðað við þá aðstöðu sem félagsmenn fá í staðinn og árgjald félagsins hefur ekki verið hækkað í mörg ár. Stefna félagsins verður þó áfram að vera með hóflegt félagsgjald svo að sem flestir hafi kost á því að taka þátt og það stendur ekki til að hækka gjaldið aftur í bráð.









Comments