top of page
Search

Aðalfundur

Aðalfundur Skotfélags Snæfellsness fór fram mánudaginn 23. mars sl. Þetta var tímamótafundur því þetta var fyrsti aðalfundur félagsins sem haldinn er í nýja félagshúsnæði félagsins sem kom síðasta sumar. Aðalfundir félagsins voru lengi vel haldnir í gamla félagshúsnæðinu okkar en félagsmönnum hefur fjölgað mikið undanfarin ár og því var ekki lengur pláss fyrir alla þá sem vildu sækja aðalfundi í því húsnæði. Þess vegna hafa síðustu aðalfundir verið haldnir á veitingastöðum og í hinum ýmsu sölum víða um Snæfellsnes.


Aðalfundurinn var ágætlega vel sóttur miðað við ófærð og leiðinda veiður síðustu daga. Tveir fulltrúar frá HSH sátu fundinn sem áhernarfulltrúar og þau komu með góða punta í lok fundar. Við þökkum þeim Kidda og Sólveigu Ástu fyrir að gefa sér tíma til að vera með okkur.


Fundurinn hófst á því að Guðmundur Andri var valinn fundarstjóri. Jón Pétur fór svo yfir skýrslu stjórnar og Mandy kynnti ársreikning félagsins. Fjármálin standa vel þrátt fyrir mjög kostnaðarsamar framkvæmdir á liðnu ári. Arnar Geir var kosinn formaður og ný stjórn var kosin. Ákveðið var að hækka árgjaldið því með tilkomu rafmagns, hita og nýs húsnæðis munu bætast við fastir kostnaðarliðir s.s. rafmagnsreikningur, tryggingar o.fl. en á sama tíma þá fá félagsmenn umtalsvert betri aðstöðu fyrir peninginn s.s. upphituð hús og salernisaðstöðu. Undir liðnum "önnur mál" þá fór mesti tíminn í að ræða mótahald s.s. PRS mót í apríl, Sjómannadagsmótið í júní og European PRO Series mótið í júlí ásamt fyrirhuguðum framkvæmdum. Þar ber helst að nefna klæðningu á nýja félagsheimilið og gluggaskipti, ný gólfefni og eldhúsinnréttngu í sama hús og til stendur að endurnýja riffilbattana. Það eru spennandi og bjartir tímar framundan.


 
 
 

Comments


HAFÐU SAMBAND

Skotgrund Skotfélag Snæfellsness

Fossahlíð 3

350 Grundarfirði

​​

Kt. 670490-1499

Banki: 0191-26-802

skotgrund@gmail.com

  • Facebook
  • Instagram
  • Black Facebook Icon
  • Black Instagram Icon

© 2020 Skotfélag Snæfellsness

bottom of page