PRS - annað mót ársins
- skotgrundmot
- Apr 18
- 1 min read
Updated: Apr 19
Um síðustu helgi fór fram annað PRS mót ársins en það þriðja í íslandsmeistaramótaseríunni þar sem jólabjallan sem haldin var hjá okkur milli jóla- og nýárs telur einnig til stiga í 2025 mótaseríunni. Mótið var haldið af PRS Ísland á Geitasandi hjá Skotfélaginu Skyttur.
17 keppendur mættu til leiks og skotnar voru 9 þrautir. Stefán Eggert Jónsson sigraði mótið, í öðru sæti var Ármann Ólafur Guðmundsson og í þriðja sæti var Arnar Geir Diego Ævarsson. Þrír Hólmarar voru í eftstu fimm sætunum en Kári Hilmarsson var í fjórða sæti og Gunnar Ásgeirs var í fimmta sæti. Hægt er að sjá öll úrslit mótsins á facebook síðu PRS Ísland.

Comments