Nóg að gera í keppni
- skotgrundmot
- Apr 20
- 1 min read
Við höfum vart undan að færa fréttir af keppni hjá Heiðu Láru og Pétri en þau keppa flestar helgar ársins.
Þann 2. apríl varð Heiða Lára Silhouettemeistari í kvennaflokki hjá Skotíþróttafélagi Kópavogs og Pétur Már var í 4. sæti í karlaflokki.
Helgina 5.-6. apríl tók Heiða Lára þátt í Landsmót STÍ sem haldið var hjá Skotfélagi Reykjavíkur og hafnaði hún í 8. sæti í 50m liggjandi og í 3. sæti í þrístöðu.
Landsmót í loftgreinum var haldið hjá Skotfélagi Kópavogs dagana 12. og 13. apríl. Á laugardeginum var keppt í loftskammbyssu og þar hafnaði Heiða Lára í 5. sæti og Pétur Már í 17. sæti. Á sunnudeginum var keppt í loftriffli og þar hafnaði Heiða Lára í 4. sæti. Hægt er að sjá úrslit mótsins hér.

Comments