top of page
Search

Lokaundirbúningur fyrir flutning á félagsheimilinu

Undanfarnar vikur höfum við verið að undirbúa flutninginn á nýja félagsheimilinu sem við erum að kaupa. Síðasta sumar lagfærðum við og breikkuðum veginn inn að skotsvæðinu og gerðum athafnasvæði umhverfis sökkulinn fyrir stóran krana og flutningabíl.


Í dag var grafið frá húsinu og aðkoman að bílastæðinu breikkuð með malarfyllingu. Það er TS vélaleiga ehf. í Snæfellsbæ sem aðstoðar okkur með það. Á morgun ætlar Vélskmiðja Grundarfjarðar ehf. að aðstoða okkur við að skera húsið af undirstöðunum og RARIK ætlar að aftengja rafmagn. Á fimmtudaginn ætla félagsmenn að hittast og bæta við stálbitum undir húsið til að styrkja það og búa það undir flutning. BB og synir ehf. frá Stykkishólmi ætla að hífa húsið fyrir okkur og Ragnar og Ásgeir ehf. frá Grundarfirði ætla að flytja húsið. Þetta er stórt verkefni og í mörg horn að líta en við erum sannfærð um að með samstilltu átaki þá mun þetta takast hjá okkur og við hlökkum til að taka nýja félagsheimilið í notkun.


 
 
 

Comments


HAFÐU SAMBAND

Skotgrund Skotfélag Snæfellsness

Fossahlíð 3

350 Grundarfirði

​​

Kt. 670490-1499

Banki: 0191-26-802

skotgrund@gmail.com

  • Facebook
  • Instagram
  • Black Facebook Icon
  • Black Instagram Icon

© 2020 Skotfélag Snæfellsness

bottom of page