top of page
Search

Gleðilegt sumar

Þá er sumarið formlega gengið í garð. Veturinn var frekar mildur og snjólítill og það hefur verið fært inn á skotsvæði svo gott sem í allan vetur. Það hjálpaði líka að við vorum búin að hækka veginn inn að skotsvæðinu og það munaði um það þessa fáu daga sem þungfært var. Nú er snjórinn hins vegar farinn og félagsmenn flykkjast á skotæfingasvæðið til skotæfinga. Framkvæmdir sumarsins eru að hefjast og við erum farin að skipuleggja viðburði sumarsins.


Fyrsta verkefni sumarsins er að klæða nýja félagsheimilið að utan og skipta um glugga. Svo stendur einnig til að laga riffilbattana fyrir sumarið. Svo tekur við lóðarfrágangur, steypuvinna o.fl. Við munum flytja fréttir af því sem er að gerast hér á heimasíðunni.


 
 
 

Comments


HAFÐU SAMBAND

Skotgrund Skotfélag Snæfellsness

Fossahlíð 3

350 Grundarfirði

​​

Kt. 670490-1499

Banki: 0191-26-802

skotgrund@gmail.com

  • Facebook
  • Instagram
  • Black Facebook Icon
  • Black Instagram Icon

© 2020 Skotfélag Snæfellsness

bottom of page