top of page
Search

Gleðilegt sumar

Þá er sumarið formlega gengið í garð. Veturinn var frekar mildur og snjólítill og það hefur því verið fært inn á skotsvæði í allan vetur. Það hjálpaði líka til að við hækkuðum veginn inn að skotsvæðinu síðasta sumar og það munaði um það þessa fáu daga sem þungfært var. Nú er snjórinn hins vegar farinn og félagsmenn flykkjast á skotæfingasvæðið til skotæfinga. Framkvæmdir sumarsins eru að hefjast og við erum farin að skipuleggja viðburði sumarsins.


Fyrsta verkefni sumarsins er að flytja nýja félagsheimilið inn á svæði og koma því fyrir. Svo tekur við yfirborðsfrágangur, steypuvinna o.fl. Við munum flytja fréttir af því sem er að gerast hér á heimasíðunni.


 
 
 

Comments


HAFÐU SAMBAND

Skotgrund Skotfélag Snæfellsness

Fossahlíð 3

350 Grundarfirði

​​

Kt. 670490-1499

Banki: 0191-26-802

skotgrund@gmail.com

  • Facebook
  • Instagram
  • Black Facebook Icon
  • Black Instagram Icon

© 2020 Skotfélag Snæfellsness

bottom of page