Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 6. mars kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði (Grundargötu 35).
Farið verður yfir hefðbundin aðalfundarstörf og ný stjórn verður kosin. Við óskum eftir framboðum til stjórnarstarfa og framboðum til formanns. Hægt er að bjóða sig fram með því að senda okkur póst á skotgrund@gmail.com. Einnig tökum við á móti tillögum að lagabreytingum og öðru sem vert er að taka fyrir á aðalfundi.

留言